25. maí 2006 klukkan 02:40
kóngurinn er dauður minkurinn fæddur þetta er leiðinda síða fluttur á http://folk.is/minkurinn-/
Björn Emil Jónsson
03. maí 2006 klukkan 02:48
Llífið er maraþon og þeir endast sem halda hægum en jöfnum hraða alla leið. Ég hefði átt að hafa þetta í húga þegar ég byrjaði að blogga, það er nú þannig með mig að ég fer oft of geist af stað og spring áður en ég kemst alla leið. Það voru reyndar nokkrir sem giskuðu á að ég myndi ekki endast í blogginu, en ég kem alltaf aftur eins og Marteinn Mosdal. Það er búið að vera geggjað að gera seldum húsið og erum að leita að leiguhúsnæði. Á sama tíma var Helga María að fermast og það fór mikill tími í það en ferminginn var alveg frábær í alla staði og daman stór glæsileg. Við erum sennilega búin að fá húsnæði en það er á selfossi en það verður erfitt að kveðja Bakkann
Björn Emil Jónsson
22. apríl 2006 klukkan 12:45
Klukkan er 06.00 á hælinu blessaðir englarnir sofa undir mínu vökula auga. sit hnýti flugur og læt hugann reika en hugsanir manns verða takmarkaðar inn í þessum víggirta steinklumpi og þannig er nú það bara sagði kalli á þakinu. En þarf að fara í sjálfskoðun þarf að bæta mig á ýmsum sviðum, sem mynnir mig á að ég á svið í fristinum kílum á það.
Konungur í einangrun kl 06.00
Björn Emil Jónsson
17. apríl 2006 klukkan 15:44
Jæja loksins vaknaður eftir smá hlé. Búin að vera með hausinn við annað en blogg undanfarið. Við hjónin létum húsið flakka og erum að leita að leiguhúsnæði en það kostar hrikalega. Þetta húsnæðis brölt hefur orðið til þess að annað hefur verið látið sitja á hakanum meðal annars vinir og vandamenn en það verður bætt úr því. Sumari leggst vel í mig og ég er bara helv kátur en það er bannað að bölva á páskum. Jæja meira á morgun Gleðilega páska og lifið heil
Kóngurinn
Björn Emil Jónsson
11. apríl 2006 klukkan 14:04
Tímarnir breitast og mennirnir með. Já nú skal skrækur skjálfa, við vorum að fá nokkuð viðsættanlegt tilboð í húsið og eigum von á öðru um hádegisbil í dag. Þannig að það gæti farið svo að við látum það flakka. Getur ekki einhver hýst pínulitla sjömanna fjölskildu meðan hún byggir sér hús það getur nú varla tekið langan tíma. Þetta er frekar stór ákvörðun þar sem okkur líður vel í stóra gula húsinu eins og hún Katrín mín kallar það. Það er ekki minni ákvörðun fyrir mann sem er ekki lærður smiðu að ráðast í að byggja, en hika er sama og tapa og lífið er ein stór áhætta hvort eð er. Mér þótti vænt um að Aðalsteinn Frissa skyldi ramba á síðuna allt of langt síðan við höfum hist og nú ætla ég að taka næsta skref og hringja í karlinn ef ég finn númerið hans kaffi hljómar alltaf vel sko.
Það varð slys í heima á fáskrúðs í gær og það greip mig einkennileg tilfynning.
Það eru 20 ár síðan ég flutti þaðan en samt fékk ég þá tilfynningu að ég væri bara ný fluttur í burt og er hálf friðlaus að vita ekki hver slasaðist, samt þekki ég bara sára fáa þarna í dag.
Kátt í höll konungs
Björn Emil Jónsson
09. apríl 2006 klukkan 19:08
Jæja þetta er búin að vera notaleg helgi. Ég átti afmæli í gær og hafði það gott heima við, Mamma kíkti við og þorsteinn og Ásta voru í mat. verst að Tóta tætibuska og Haraldur hárfagri komust ekki vegna anna og rafmagnsleysis, en þau koma síðar. Ég fékk glæsilegar gjafir man united koddaver og clave kubba til aðspila latin tónlist á settið. Nú en best af öllu var náttúrulega að fá Almar en það er óvenju langt síðan hann hefur komið. jæja ég er svo slakur að ég nenni ekki að skrifa meira. eeee jú Man united- Arsenal kl 3 það verður togstreita á heimilinu en gaman samt.
Kv Rækju Kóngurinn
Björn Emil Jónsson
07. apríl 2006 klukkan 04:45
Jæja þetta er nú allt annað líf sko skilurðu. Ég hef verið gagntekinn af furðulegri tilfynningu í dag. Mig langar í allt nýtt, nýtt hús aðra vinnu og helst í öðru landi. en ég er nú ekki að fara neitt. Ég viðurkenni að mér hunleiðist í vinnuni þessa dagana, en skemmti mér þvi mun betur í aukavinnuni en nú er ég farinn að leika mér að spítum hjá Halla smið. Það er skemmtileg tilbreyting
að sjá eitthvað eftir sig að kvöldi dags. Jæja er bara frekar andlaus í dag en kem með eitthvað róttækt bráðlega já og myndir af trommusettinu mínu,ég var að spá í að setja myndir af krökkunum en hef ekki komið því í verk að taka myndir af þeim. Allt í réttri röð.
Kóngurinn kveður
Björn Emil Jónsson